Forsvarskonur Stígamóta og Bjarkarhlíðar telja brýna þörf á að grípa til aðgerða til þess að draga úr umfangi vændis hér á landi. Þær leggja til opin réttarhöld og nafnbirtingu, hljóti vændiskaupendur dóm.„Ég myndi vilja sjá afnám nafnleysis kaupenda. Kaupendur þurfa að taka einhverjum afleiðingum af því að kaupa vændi,“ segir Drífa Snædal, talskona Stígamóta.Afleiðingar fyrir vændiskaupendur eru litlar - oftast sekt sem nemur í kringum 200 þúsund krónum. Þeir eru ákærðir ef þeir gerast uppvísir að vændiskaupum oftar en einu sinni. Aftur á móti er nokkuð sjaldgæft að lögregla grípi vændiskaupendur.„Ef það væri nafnbirting og ef það væri dómur að þá held ég að margir af þeim myndu hugsa sig tvisvar um áður en þeir tækju áhættuna af þessu,“ segir Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhl