Hitaveitur gætu orðið að veruleika á Grænlandi en jarðhiti finnst þar mun víðar en áður var talið. Búið er að kortleggja nærri fjögurhundruð heitavatnsuppsprettur í rannsókn sem grænlenskar og danskar vísindastofnanir standa á bak við í samstarfi við íslenska jarðvísindamenn.