Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Önnur ákæra gefin út á hendur James Comey

Ákæra var í dag gefin út á hendur James Comey, fyrrverandi forstjóri alríkislögreglunnar FBI í Bandaríkjunum, fyrir færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum fyrir um ári síðan.Þetta er önnur ákæran á hendur Comey en fyrri ákærunni var vísað frá á síðasta ári eftir að skipun Lindsey Halligan sem bráðabirgðasaksóknara í málinu var dæmd ólögmæt.Ákæran er talin tilkomin vegna þrýstings sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur sett á dómsmálaráðuneytið að gefa út ákærur gegn pólitískum óvinum hans.Færsluna birti Comey á samfélagsmiðlinum Instagram og var hún ljósmynd af skeljum sem búið var að raða þannig að þær mynduðu tölurnar 86 og 47.Talan 86 er stundum notuð í slangri í Bandaríkjunum til þess að merkja að útskúfa eigi einhverjum en talan hefur einnig verið notuð í götumáli yfir manndráp
Önnur ákæra gefin út á hendur James Comey

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta