„Við teljum þetta jákvæðar aðgerðir og höfum um nokkurt skeið beðið eftir því að stjórnvöld nýti ríkislóðir með þessum hætti. Það jákvæða er að það er hægt að hrinda einhverju af þessum verkefnum hratt af stað og einmitt á þann hátt að það mætir þörfum markaðarins um þessar mundir sem eru fyrir smærri og hagkvæmari eignir,“ segir Róbert Farestveit, sviðsstjóri greiningar- og hagfræðisviðs ASÍ. Ríkið og Reykjavíkurborg undirrituðu í dag samkomulag um uppbyggingu 12-14 hundruð íbúða á ríkislóðum á næstu árum. UPPBYGGING ÞARF AÐ VERA TIL LANGTÍMA Róbert segir það langtímaverkefni að ná jafnvægi á húsnæðismarkaðinn og margþættar aðgerðir þurfi til.„Í þessu tilfelli er gert ráð fyrir að um 20-30% af byggingarmagninu verði hagkvæmar íbúðir en til samanburðar eru um 4000 fjölskyldur á biðlista