Rétt er að vara við lýsingum á kynferðisofbeldi sem koma fram í þessari umfjöllun. Það er þriðjudagur. Við erum stödd miðsvæðis í Reykjavík. Kveikur hefur fengið ábendingu um að á þessum slóðum sé vændisstarfsemi, töluvert af henni reyndar. Við stöldrum við og þurfum ekki að bíða lengi. Þarna er maður í leit að einhverju. Á endanum gengur hann að herbergi 214. Dyrnar opnast. Hann staldrar stutt við.Við fylgjumst með næstu daga og sjáum ákveðið mynstur. Fleiri menn fara inn í sama herbergi, herbergi 214, öllum stundum dags.Rauða hverfið í Reykjavík er til. Þar grasserar vændisstarfsemi. Talið er að margar kvennanna sem auglýstar eru þar séu þolendur mansals.Hið sama á sér stað á fleiri stöðum á svipuðum slóðum, í Rauða hverfinu í Reykjavík, hverfi sem er sérstaklega auglýst sem slíkt á vins