Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi, sem er með starfsemi sína á Laugarvatni, er með tjalda, sem er hluti af stóru rannsóknarverkefni sem snýst um marga þætti í lífi tjaldsins á Íslandi.Til dæmis til að meta hvað stofninn er stór, af hverju sumir fuglar eru staðfuglar en sumir fara til útlanda á veturna. „Við höfum náð ágætis árangri í þessu en í stuttu máli þá gera ungarnir að mestu eins og pabbi gerir.Ef faðirinn er farfugl er mjög líklegt að ungarnir verði það líka og ef faðirinn er staðfugl er líklegt að ungarnir verði það líka. Þetta er af því að tjaldafeður eru aðeins umhyggjusamari en mæður þegar ungarnir taka að stálpast. Foreldrarnir eru svo aðskildir á veturna en ungarnir elta pabba,” segir Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður safnsins. TJALDAR VERÐA MJÖG GAMLIR Tóma