Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Flugferðum milli Eyja og Reykjavíkur fjölgað í tvær á dag

Samningur um áætlunarflug milli Eyja og Reykjavíkur verður framlengdur og flugferðum fjölgað í tvær á dag. Þetta kemur fram í tilkynningu Innviðaráðuneytisins og segir ráðuneytið þetta gert til að bregðast við erfiðleikum í samgöngumálum í Vestmannaeyjum síðustu vikur. Ein ferð verður farin á morgun, 29. apríl, en frá og með næsta fimmtudegi, 30. apríl, og til 15. maí verður flogið tvisvar á dag, alla daga vikunnar.  Vonast er til að Landeyjarhöfn verði opnuð í næstu viku, gangi öldu- og veðurspár eftir. Samkvæmt ölduspá er áætlað að dýpkun Landeyjahafnar geti hafist á ný seinni partinn á fimmtudag eða á föstudag. Vonast er til að ásættanlegt dýpi verði komið í höfnina fyrir Herjólf þann 7. maí. VONAST EFTIR BETRI TÍÐ MEÐ KOMU JAN DE NUL Búist er við miklum úrbótum í rekstri hafnarinnar
Flugferðum milli Eyja og Reykjavíkur fjölgað í tvær á dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta