Flugfélagið Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta er minna tap en á sama tímabili í fyrra þegar tapið nam 6,1 milljarði króna. Þrátt fyrir þetta hafa tekjur félagsins aldrei verið hærri, að sögn stjórnanda. Jukust þær um 21% milli ára og voru 42,9 milljarðar króna á fyrstu þremur mánuðum ársins.