Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hvað er OPEC?

Sameinuðu arabísku furstadæmin tilkynntu í dag að þau ætluðu að draga sig úr OPEC og að ákvörðunin tæki gildi 1. maí. Ákvörðunin þykir vera mikið högg fyrir bandalagið en hvað er OPEC?OPEC stendur fyrir Organization of the Petroleum Exporting Countries. Þetta eru samtök ellefu olíuríkja, nú þegar Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa dregið sig úr þeim, sem framleiða tæplega 40 prósent af hráolíu heimsins og ráða yfir tæplega 80 prósent olíuforða heimsins.Samtökin voru stofnuð 14. september 1960 af Íran, Írak, Kúveit, Sádi-Arabíu og Venesúela, til að verja hagsmuni helstu olíuframleiðslulanda heims með því að samhæfa framleiðslu til að tryggja stöðugar tekjur fyrir aðildarríki. Samtökin samanstanda einnig af Alsír, Lýðveldinu Kongó, Miðbaugs-Gíneu, Gabon, Líbíu, og Nígeríu.Samtökin undirritu
Hvað er OPEC?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta