Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Björgvin Halldórsson jarðsunginn

Björgvin Halldórsson tónlistarmaður var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag að viðstöddu miklu fjölmenni. Björgvin lést á heimili sínu í Hafnarfirði 9. apríl, 74 ára að aldri. Hann var frá unga aldri og fram á hinsta dag einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar.Séra Guðni Már Harðarson jarðsöng Björgvin og margt af þekktasta tónlistarfólki landsins tók þátt í útförinni. Tónlistin var allsráðandi þar sem mörg af þekktustu lögum Björgvins voru sungin.Einsöngvarar voru fjölmargir og þeirra á meðal þau Krummi og Svala, tvö af þremur börnum Björgvins. Eftirspilið var lag Björgvins, Gullvagninn.
Björgvin Halldórsson jarðsunginn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta