Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Það er bara klöppin og stórgrýtið eftir“

Vegurinn yfir á Rauðasand á sunnanverðum Vestfjörðum er svo illa farinn að ferðamenn veigra sér við akstrinum. Búist er við að fjöldi ferðamanna leggi leið sína á Rauðasand í sumar þegar almyrkvi verður á sólu.„Það er varla hægt að tala um veg. Það gleymdist alveg að opna vatnsrásirnar þegar fór að hlána og honum var í raun bara leyft að renna burt með rigningarvatninu,“ segir Ástþór Skúlason, bóndi á Melanesi á Rauðasandi, sem rekur þar tjaldstæði á sumrin.Hann segir veginn frá Patreksfirði yfir á Rauðasand helst færan jeppum eftir vorleysingarnar. Að hans sögn eru ferðamenn áhyggjufullir og hann fær tölvupósta oft á dag þar sem spurt er um ástandið á veginum. „Þetta fer svo náttúrulega beint á netið þar sem fólk er hreinlega varað við að vera að leggja leið sína hingað.“Eftir samskipti v
„Það er bara klöppin og stórgrýtið eftir“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta