„Ég náttúrlega fagna þessu,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, um áform stjórnvalda um að byggja á annað þúsund íbúða í Reykjavík á næstu árum.„Það liggur ljóst fyrir að við þurfum að fara að byggja meira af íbúðum sem henta fólki á vinnumarkaðinum,“ segir Finnbjörn.Hann bendir á að nokkur ládeyða sé í byggingariðnaðinum. Sé byggt á réttum forsendum, sem fyrst og án lóðabrasks ættu aðgerðirnar því að vera jákvæðar.Hluti íbúðanna er hugsaður fyrir hlutdeildarlán, stúdentaíbúðir og búseturétt meðal annars. Finnbjörn fagnar þessu sömuleiðis.„Við höfum verið að kvarta undan því að við séum ekki að fá nógu mikið af íbúðum sem henta fólki undir meðaltekjum. Þessar íbúðir ættu að henta fyrir þann tekjuflokk.“ASÍ og BSRB stóðu fyrir fundi fyrr í dag um húsnæðismál, meðal