Rekstrarhagnaður Símans, fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA), var tæplega 1,4 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2026. Rekstrarhagnaður jókst um 90 milljónir króna eða 7,1% frá sama tímabili á síðasta ári.Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2026 námu alls tæplega 7,3 milljörðum króna samanborið við 7,2 milljarða á sama tímabili 2025 og hækkuðu um 1,1%.Tekjur af auglýsingamiðlun Símans námu 607 milljónum króna samanborið við 563 milljónir króna á sama tímabili í fyrra og hækkuðu því um 7,8%. Vörusala jókst um 8,4% á milli ára.Hagnaður Símans á tímabilinu var 171 milljón króna samanborið við 188 milljóna króna tap á sama tímabili 2025. Viðsnúningurinn er því um 360 milljónir.Eiginfjárhlutfall Símans var 35,4% í lok fyrsta ársfjórðungs og eigið fé 16,7 milljarðar króna.María Björk Einarsd