Aftökum í Norður-Kóreu fjölgaði töluvert þegar COVID-19 faraldurinn hófst og stjórnvöld lokuðu landamærunum, samkvæmt skýrslu samtakanna Transitional Justice working Group. Samtökin halda skrá yfir mannréttindabrot í Norður-Kóreu og tóku viðtöl við rúmlega 250 manns sem höfðu flúið landið.Samkvæmt skýrslunni voru að minnsta kosti 153 teknir af lífi eða dæmdir til dauða frá upphafi árs 2020 til loka 2024. Árin fimm fyrir faraldurinn voru það 44. Algengustu brotin tengdust trúarbrögðum, hjátrú og erlendu menningarefni eins og að neyta tónlistar og sjónvarpsefnis frá Suður-Kóreu.Aftökum fækkaði árin 2015 til 2019 vegna alþjóðlegs þrýstings í kjölfar skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum, sem komst að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld væru kerfisbundið að fremja mannréttindabrot. Milli 2011 og 2024 vor