Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Áframhaldandi landris og þrýstingur eykst

Greining Veðurstofu Íslands sýnir áfram greinilegt landris við Svartsengi á Reykjanesskaga. Kvikusöfnun þar er hæg en stöðug að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar, en samkvæmt líkanreikningum hafa rúmlega 25 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí.Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin enn sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss.RÚV / Víðir Hólm Ólafsson
Áframhaldandi landris og þrýstingur eykst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta