Fyrirtækin Humble og Krónan hlutu í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Brekkubæjarskóla á Akranesi útnefndir Varðliðar umhverfisins.