„Það eru komnir átta dagar og ég finn fyrir ofboðslegu frelsi og er að springa úr monti,“ segir Birna Gunnlaugsdóttir, menntunarfræðingur og frambjóðandi Sósíalista, sem eftir tæplega hálfa öld hefði sjálfsagt getað valið betri tíma til að hætta að reykja en ætlar að hugleiða og anda sig í gegnum kosningabaráttuna.