Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Svíar vara við skorti á flugvélaeldsneyti

Stjórnvöld í Svíþjóð vara við skorti á flugvélaeldsneyti vegna raskana á olíuflutningum í Mið-Austurlöndum. Orkumálaráðherra hvetur Svía til að hafa forsjá ætli þeir að ferðast. Forstjóri Sænsku orkustofnunarinnar segir litlar líkur á því að skammta þurfi eldsneyti.„Við viljum gefa snemmbúna viðvörun um að það er áhætta á skorti á flugvélaeldsneyti. Þetta byggir á mati Sænsku orkustofnunarinnar,“ sagði Ebba Busch, orkumálaráðherra Svíþjóðar, á blaðamannafundi í dag.Þótt Bandaríkin og Íran kæmust að varanlegu friðarsamkomulagi á morgun tæki það einhvern tíma áður en olíu- og gasbirgðir kæmust í samt lag, að sögn Busch.Enn sem komið er er ekki skortur á flugvélaeldsneyti í Evrópusambandinu en áhyggjur fara vaxandi þar sem um 20 prósent af eldsneytinu sem sambandið notar kemur um Hormússund.B
Svíar vara við skorti á flugvélaeldsneyti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta