Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Grunar að hinn látni við Háafoss sé maðurinn sem leitað var að

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar enn líkfund við Háafoss. Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri kvaðst ekki getað tjáð sig um hvort hinn látni væri erlendi ferðamaðurinn sem leitað var að í síðustu viku.Sterkur grunur sé um að svo sé en málið sé enn til rannsóknar. Maðurinn var einn á ferð en lögregla er í samskiptum við viðeigandi sendiráð til að bera kennsl á manninn.Lögreglan óskaði eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu við leit að erlendum ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað í síðustu viku. Leitað var að honum í grennd við Háafoss í Þjórsárdal þar sem síðast sást til bíls sem hann var á.Leitinni var frestað fram yfir helgi eftir að hún hafði ekki borið árangur. Íris segir ákvörðun um að fresta leitinni hafa verið tekna þar sem aðstæður í ánni hafi verið of krefjandi.
Grunar að hinn látni við Háafoss sé maðurinn sem leitað var að

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta