Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Jón Pétur biðst afsökunar: Gerði málstaðnum engan greiða

Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, viðurkennir að hafa notað rangt orðalag í umdeildri færslu sem hann skrifaði á samfélagsmiðilinn X.Í færslunni sagði Jón Pétur að geðheilsa ungra kvenna væri á hrikalegum stað þrátt fyrir að hvergi búi konur við meira jafnrétti. Vék hann því næst að því að undanfarna áratugi hafi konum í stjórnunarstöðum fjölgað mjög á sama tíma og frjósemi minnkar og skilnuðum fjölgar. „Við bælum ekki niður árþúsunda náttúruval vegna skoðana framsækinna háskólamanna af hugvísindadeildum. Minnkum áherslur á umbúðir, hamstrahjólið og firringu okkar allra vegna.”Þessi orð fóru öfugt ofan í marga og sá utanríkisráðherra ástæðu til að skrifa grein á Vísi þar sem hún sagði að frelsi kvenna væri ekki vandamál og fjölmargir lýstu furðu og hneykslan á samfélagsmiðlum.
Jón Pétur biðst afsökunar: Gerði málstaðnum engan greiða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta