Jóni Pétri Zimsen þingmanni Sjálfstæðisflokksins tókst að hleypa öllu í bál og brand á samfélagsmiðlum vegna orðsendingar sem hann ritaði á X – en þar ræddi hann um könnun sem leiddi í ljós að konur á aldrinum 15 til 25 ára væru vansælar. Hann taldi þetta þá vera til marks um að jafnréttisbaráttan væri komin í ógöngur en hefur nú beðist afsökunar.