Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Loðnan þrefalt ódýrari á Íslandi en í Færeyjum

Færeyskar vinnslur greiða þrefalt hærra verð fyrir loðnu en íslenskar. Þingmaður Flokks fólksins segir ljóst að ríki og sveitarfélög gjaldi undirverðlagninguna dýru verði.Í svari atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn Eydísar Ásbjörnsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, kemur fram að meðalverð á landaðri loðnu til frystingar hafi verið 80,64 krónur á kílóið á síðasta fiskveiðiári. Lægsta verð nam 67,64 krónum en hæsta verð 89,48 krónum.Meðalverð á sömu afurð í Færeyjum nam hins vegar 250 krónum samkvæmt upplýsingum frá Færeyjum.Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar og þingmaður Flokks fólksins, segir þessar upplýsingar sýni að víð víða sé pottur brotinn við verðlagninguna hér á landi. „Þetta þýðir að hlutur sjómanna og hafnargjöld hefðu átt að vera þrefalt hærri á síðustu vertíð. Það er
Loðnan þrefalt ódýrari á Íslandi en í Færeyjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta