„Það eru allir búnir að fá nóg af þessu hérna. Það er svo mikil ólga hérna í bænum að ég eiginlega get ekki lýst því.“Þetta segir Þórunn Pálsdóttir, íbúi í Vestmannaeyjum. Hún segir stöðu samgangna þar grafalvarlega. Upplýsingagjöf til Eyjamanna sé fyrir neðan allar hellur og bæta verði flugsamgöngur.Ekki er útlit fyrir að hægt verði að sigla Herjólfi til Landeyjahafnar næstu daga, en höfnin hefur verið lokuð mestallt árið vegna sandburðar. Á meðan hefur verið siglt til Þorlákshafnar sem er mun lengri leið.Sigling Herjólfs frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gærkvöld tók tæpar sjö klukkustundir. Skipið lagðist ekki að bryggju í Eyjum fyrr en á þriðja tímanum í nótt. GENGUR ILLA AÐ DÝPKA LANDEYJAHÖFN Þórunn Pálsdóttir íbúi í Vestmannaeyjum segir ástandið óboðlegt. Hún hefur ítrekað vakið