Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sigur Rós spilar í aldarafmæli Attenboroughs

Hljómsveitin Sigur Rós er meðal þeirra sem hylla breska þáttagerðarmanninn David Attenborough þegar hann verður 100 ára 8. maí. Búið er að skipuleggja mikil hátíðarhöld í tilefni af afmæli Attenboroughs í Royal Albert Hall í Lundúnum, höfuðborg Bretlands. Sigur Rós flytur lagið Hoppipolla sem var notað í kynningu á fyrstu tveimur þáttaröðunum af Planet Earth, sem sýndar voru með heitinu Jörðin á RÚV.Tónlist sem var notuð í sjónvarpsþáttum Attenboroughs verður áberandi á samkomunni. Dan Smith, söngvari Bastille, syngur lagið Pompeei við undirspil hljómsveitar BBC. Lagið var notað í þriðju þáttaröð Planet Earth.Þáttagerðarmenn á borð við Michael Palin, Steve Backshall og Chris Packham koma fram og segja frá kynnum sínum af Attenborough.
Sigur Rós spilar í aldarafmæli Attenboroughs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta