Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Segja sig úr OPEC

Sameinuðu arabísku furstadæmin, eitt helsta olíuframleiðsluríki heims, hafa sagt sig úr OPEC, Samtökum olíuútflutningsríkja. Frá þessu segir ríkisfjölmiðillinn WAM í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fjölmiðillinn segir að þetta sé hluti af stefnumótun stjórnvalda til lengri tíma, áherslum þeirra í efnahagsmálum og breyttri stöðu orkumála.Mikil ólga hefur verið á olíumarkaði heimsins síðustu mánuði eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árásir á Íran. Íranar hafa á móti ráðist gegn öðrum ríkjum við Persaflóa, þar á meðal Sameinuðu arabísku furstadæmunum.Leiðtogar ríkja við Persaflóa hittast í Sádí-Arabíu í dag til að ræða stöðuna í olíu- og gasútflutningi eftir að stríð Bandaríkjanna og Ísraels við Íran hófst. Mohammed bin Salman, krónprins Sádí-Arabíu, tók á móti þjóðarleiðtogunum í dag.
Segja sig úr OPEC

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta