Þeim sem ferðast með einkabílnum hefur fjölgað á höfuðborgarsvæðinu síðustu ár, meðan þeim sem kjósa aðra ferðamáta fækkar. Fæstir telja að lausnir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins breyti sínum ferðavenjum og enn færri að áætlanir hans standist. Þetta kemur fram í niðurstöðum Gallup-könnunar sem kynntar voru á ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu í dag undir yfirskriftinni Greiðari leið – Hugmyndir óskast.Konráð Guðjónsson hagfræðingur hjá Kontext kynnti niðurstöður hennar. 57% sögðust telja að lausnir samgöngusáttmálans myndu breyta litlu fyrir sínar ferðavenjur og 66% höfðu ekki trú á að áætlanir hans myndu standast. 19% höfðu mikla trú á að lausnir sáttmálans myndu breyta sínum ferðavenjum og 18% voru bjartsýnir á að áætlanir stæðust.Önnur Gallup könnun fyrir Eflu og Samtö