Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Játaði að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleikum Taylor Swift

21 árs gamall maður hefur játað að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleika bandarísku söngkonunnar Taylor Swift í Vín í Austurríki fyrir tveimur árum. Réttarhöld yfir honum og öðrum manni hófust í dag.Maðurinn, sem gengur aðeins undir nafninu Beran A, var ákærður fyrir hryðjuverk og önnur brot. Hann kom fyrir dóm í morgun og játaði einnig að hafa verið hluti af hryðjuverkasamtökum.Saksóknarar sögðu lögreglu hafa fundið nánast tilbúna sprengju við húsleit heima hjá manninum. Hann var handtekinn eftir ábendingu frá leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, skömmu áður en tónleikar Swift áttu að hefjast.Öllum þrennum tónleikum söngkonunnar í borginni var aflýst í kjölfarið og rúmlega hundrað níutíu og fimm þúsund tónleikagestir sátu eftir með sárt ennið, þar á meðal fjöldi Íslendinga.Swift sagði þa
Játaði að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleikum Taylor Swift

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta