Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa á undanförnum dögum stigið fyrir framan fjölda myndavéla og hljóðnema til að lýsa því yfir að Bandaríkjunum sé nauðsynlegt að klára að reisa veislusal Donalds Trump við Hvíta húsið. Skotárásin á kvöldverði samtaka fréttamanna í Hvíta húsinu um helgina staðfesti þá nauðsyn.