Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Greindist með krabbamein á meðgöngu

Haustið 2024 komust systurnar Laufey Hanna og Lovísa Tómasdætur báðar að því að von væri á þeirra fyrstu börnum og spennan og gleðin var mikil að fá að upplifa þetta saman. Meðgangan fór vel af stað hjá Laufeyju en Lovísa varð veik; glímdi við mikla ógleði og uppköst, þreytu og hafði litla matarlyst. Ekkert sem er óeðlilegt hjá óléttri konu. > Í lok nóvember fæ ég rosalegan kviðverk. Ég hélt að þetta væri tengt meðgöngunni en daginn eftir er ég algjörlega ónýt og fer upp á bráðamóttöku. Þeir ætluðu að senda mig heim en ég brotnaði niður og sagðist ekki fara fyrr en ég fengi að hitta lækni. Ég hafði svo miklar áhyggjur af barninu. Í fyrstu er talið að um botnlangabólgu sé að ræða og hann sé við það að springa. Lovísa er því drifin í aðgerð en þar kemur í ljós að ekkert er að botnlanganum
Greindist með krabbamein á meðgöngu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta