Skólaráð Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla krefst tafarlausra aðgerða vegna aðstæðna á vegkafla sem nemendur skólans þurfa að fara um dag hvern. Oft og tíðum falli þar grjót eða snjóflóð á veginn sem talinn er einn sá áhættumesti á landinu. Nauðsynlegt sé fyrir börnin að ferðast á milli.