Pólitísk staða klerkastjórnarinnar í Íran er sterkari nú en fyrir stríð, segir Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sagnfræði. Allt bendi til þess að átökum í Miðausturlöndum sé ekki lokið, segir hann og vísar til vopnaflutninga og flutninga á hermönnum. Rætt var við Magnús Þorkel á Morgunvaktinni í morgun. Hann segir Írana í raun með tromp á hendi sem þeir hafi ekki haft fyrir stríð og vísar þar meðal annars til Hormússunds. Þar hafi verið frjálsir flutningar fyrir stríð en nú ræði Íranar að taka þar tolla sem myndu efla efnahag ríkisins og auka kostnað við flutninga.Hér fyrir neðan má hlusta á þáttinn:Pólitísk staða klerkastjórnarinnar í Íran er sterkari nú en fyrir stríð, segir Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sagnfræði. Það sé meðal annars vegna yfirráða yfir Hormússundi.Ab