Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rændi verslun vopnaður hnífi

Karlmaður var dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnað rán í matvöruverslun. Maðurinn fór inn í verslun Nettó á höfuðborgarsvæðinu með lambhúshettu á höfði og dró upp hníf þegar hann skipaði stúlku sem var að afgreiða að opna sjóðsvélina. Maðurinn tók allt að 30 þúsund krónur úr vélinni og hvarf síðan á braut.Maðurinn framdi ránið í apríl 2023, fyrir þremur árum, en ákæra var ekki gefin út fyrr en tveimur árum síðar. Auk skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar var maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni sem var við störf hálfa milljón króna í bætur. Dómurinn var upp kvaddur í Héraðsdómi Reykjaness 8. apríl en birtur í gær.Verslun Nettó. Safnmynd.Samkaup
Rændi verslun vopnaður hnífi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta