„Fulltrúum ESB í Brussel kom mjög á óvart þegar ég dró upp fyrirvara Alþingis og þau rauðu strik sem þar höfðu verið dregin í greinargerð og voru forsenda fyrir samþykkt þingsályktunarinnar 2009,“ segir Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur í umsögn sinni um þá þingsályktunartillögu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, sem nú er til meðferðar á Alþingi.