Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Segja að Bandaríkin geti ekki lengur ráðskast með önnur ríki

„Bandaríkin eru ekki lengur í þeirri stöðu að þau geti þvingað stefnu sína upp á sjálfstæð ríki,“ sagði Reza Talaei-Nik, varavarnarmálaráðherra Írans í dag. Hann sagði að Bandaríkjastjórn yrði að draga til baka ólögmætar og órökréttar kröfur sínar. Talaei-Nik sagði að Íranar væru reiðubúnir að deila hernaðartækni sinni með öðrum ríkjum. Vopnahlé er enn í gildi í stríði Írana og Bandaríkjamanna. Olíuverð hækkaði í morgun og hlutabréfaverð lækkaði. Sú þróun er rakin til frétta af því að Bandaríkjastjórn hafi ekki brugðist við tillögum Íransstjórnar um mögulegt samkomulag.Andrei Belousov, varnarmálaráðherra Rússlands, og Reza Talaei-Nik, varavarnarmálaaráðherra Írans.EPA / RUSSIAN FOREIGN MINISTRY PRESS SERVICE / HANDOUT
Segja að Bandaríkin geti ekki lengur ráðskast með önnur ríki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta