Utanríkisráðherra Írans Abbas Araghchi segir að sambandið við Rússland hafi aldrei verið sterkara. Þetta sagði hann eftir fund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Pétursborg í gær, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK.Araghchi sagði að hann væri mjög ánægður með stuðning Rússa. Rússar hafi boðið aðstoð sína til að miðla málum í stríðinu í Mið-Austurlöndum og boðist til að geyma auðgað úran Írana til að draga úr spennu vegna kjarnorkuáætlana þeirra.Bandaríkjamenn eru að fara yfir nýjasta útspil Írana til friðarviðræðna. Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður tortrygginn gagnvart tillögum Írana því ekkert sé minnst á kjarnorkuáætlun þeirra.The Guardian hefur eftir Þýskalandskanslaranum Friedrich Merz að Íranar, sem væru augljóslega mjög góðir samningamenn, væru að niðurlægja Bandaríkjamenn