Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi.