Ef einhver er að velta fyrir sér hvað Heimir Schnitzel, hinn „hundtryggi“ aðstoðarmaður einkaspæjarans Harry Rögnvalds, er að spögulera þá er svarið að finna í svakamálaleikritinu Morð skulu standa. Þessi nýjasti kafli í sögu þessara kostulegu félaga á sér stað í Þjóðleikhúskjallaranum og er óhætt að segja að aðdáendur fimmaurabrandara, neðanbeltishúmors og Spaugstofu-nostalgíu fái nóg fyrir sinn snúð.