Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Uppgötvaði fornar bæjartóftir með dróna

Stundum er best að lesa í landslagið úr lofti. Árni Einarsson líffræðingur og fornvistfræðingur hefur rannsakað og kortlagt mannvistaleifar á Norður- og Suðurlandi. Til þess notar hann dróna og staða sólar þarf að vera rétt við slíka rýni.„Birtan skiptir öllu máli. Snemma á morgnana og seint að kvöldi er eins og þetta rísi upp úr jörðu þegar sól er lágt á lofti. Maður kemur ekki auga á það nema með drónanum. Þetta er ástæðan fyrir því að þetta hefur ekki fundist áður.“Nú einbeitir Árni sér að Suðurlandi, nánar tiltekið Njáluslóðum. Ýmislegt hefur komið honum á óvart eins og merki um áveitu, forna akra og áður óþekkt bæjarstæði frá víkingaöld.„Hér á Keldum hefur verið flókið áveitukerfi sem hefur þurft mikinn mannskap og vatnið séð fyrir kornrækt á þessum slóðum.“
Uppgötvaði fornar bæjartóftir með dróna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta