Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stíf sunnanátt

Í dag blæs að sunnan og verður nokkuð stíf sunnanátt með súld eða rigningu og mildu veðri. Þó verður að mestu þurrt og hlýtt á Norðaustur- og Austurlandi. Seinni partinn kólnar heldur og á morgun bætir í vind.Sunnan átta til fimmtán metrar á sekúndu og rigning eða súld, en þurrt að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti sjö til sextán stig, hlýjast norðaustantil. Skúrir á vestanverðu landinu síðdegis og kólnar heldur.Suðvestan átta til átján á morgun, hvassast norðantil. Skúrir eða slydduél, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti þrjú til tólf stig, mildast austanlands.Suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél, en þurrt að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Breytileg átt í lok vikunnar og kólnar með éljum víða um land.
Stíf sunnanátt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta