„Við sjáum að útgjaldavöxturinn er eins og venjulega umfram tekjuvöxt, við erum að eyða meiru en við öflum, sem er ekki sjálfbært. Það þarf að ráðast í umfangsmikla tiltekt í rekstri borgarinnar og taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst. Það sem helst mun hreyfa nálina er að minnka yfirbygginguna, fækka millistjórnendum, útvista verkefnum og fækka þeim sem og að ráðast í niðurgreiðslu skulda.“