Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um innbrot í heimahús á kvöld- og næturvaktinni. Þegar lögregla mætti á staðinn kom í ljós að ekki var allt sem sýndist. Mennirnir sem þarna voru á ferð voru að reyna að hjálpa húsráðanda að komast heim til sín. Tveir voru handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar í Kópavogi. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild.Bifhjól lögreglunnar.RÚV / Ragnar Visage