Olíuframleiðsla í Venesúela er langt undir framleiðslugetu en minna en 30% olíuborhola eru nýttar í landinu. Framleiðslan er í kringum ein milljón olíutunna á dag en framleiðslan var um þrjár milljónir tunna á dag fyrir tveimur áratugum.Aðeins 8,491 olíuborholur eru nýttar af 30,722 sem eru í landinu. Venesúela er með einn mesta hráolíuforða heimsins en mikil spilling, skortur á fjárfestingu, óstjórn landsins og viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna hafa leitt til nær algers hruns í olíuiðnaðinum í landinu.Bandaríkjastjórn hefur reynt að reisa við olíuiðnaðinn í landinu síðan fyrrum forseti landsins Nicolas Maduro var handtekinn í aðgerðum bandaríska hersins í janúar. Settur forseti Venesúela, Delcy Rodriguesz, er undir pressu frá Washington um að liðka fyrir og flýta endurbótum svo hægt sé að