Tankskip við akkeri við Hormússund, 23. apríl 2026. Myndin tengist fréttinni óbeint.AP / Asghar BesharatiLúxussnekkja í eigu rússnesks milljarðamærings sigldi í gegnum Hormússund á laugardaginn áleiðis til Óman. Gögn á vefsíðunum Marine Traffic og Vessel Finder sýna þetta, samkvæmt fjölmiðlinum Kyiv Independent.Snekkjan er í eigu Alexey Mordashov sem er ríkasti maður Rússlands. Hann er undir viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna, Bretlands og Evrópusambandsins en snekkjan er skráð í Rússlandi. Tvö tankskip, fimm flutningaskip og farþegaskip sem einnig eru undir viðskiptaþvingunum sigldu um sundið sama dag.Þrátt fyrir siglingabann um Hormússund halda Íranar áfram að leyfa rússneskum skipum að sigla þar um án þess að greiða fyrir það sérstaklega.