RÚV / Sölvi AndrasonAurskriða féll á Grenivíkurvegi við Knarrarnes, nærri Víkurskarði, skömmu eftir miðnætti samkvæmt Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Búið er að loka fyrir umferð um Grenivíkurveg frá sveitabænum Garðsvík að Fnjóská. Umferðinni er beint um Dalsmynni.Vegurinn verður lokaður í nótt þar sem talin er hætta á áframhaldandi skriðum í kring. Staðan verður endurmetin í fyrramálið í samráði við Vegagerðina og Veðurstofu Íslands.