Ný rannsókn bendir til þess að veltihringrás Atlantshafsins, eða AMOC, hafi veikst svo mikið að hún gæti hrunið fyrir lok aldarinnar. Slíkt gæti þýtt nýtt kuldaskeið í Bretlandi, Skandinavíu og á Íslandi.Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands, og Hrönn Egilsdóttir, sviðstjóri umhverfissviðs hjá Hafrannsóknarstofnun, ræddu um AMOC í Kastljósi í kvöld, hugsanlegt hrun straumsins og afleiðingarnar sem það gæti haft í för með sér. Hvað er veltihringrás Atlantshafsins? Veltihringrás Atlantshafsins var útskýrð svona í þætti Kveiks árið 2024:„Sunnan frá miðbaug berst heitur og saltur yfirborðssjór til norðurs. Í Irmingerhafi, sem er á milli Grænlands og Íslands, hitar þessi heiti sjór loftið, skilar í raun af sér varmanum, kólnar og blandast kaldari og ferskari he