Maðurinn sem hleypti af skotum á kvöldverði samtaka blaðamanna Hvíta hússins á laugardagskvöld var í dag formlega ákærður. Hann er ákærður fyrir tilraun til að verða Donald Trump, Bandaríkjaforseta að bana og fyrir flutning og notkun á skotvopnum til að beita ofbeldi.Árásarmaðurinn, hinn 31 árs Cole Thomas Allen, á að hafa hlaupið í gegnum öryggisleit á viðburðinum vopnaður haglabyssu, skammbyssu, þremur hnífum og öðrum vopnum. Hann játaði hvorki né neitaði ákærunum á hendur sér fyrir dómi í dag. Verði hann dæmdur sekur gæti hann átt lífstíðardóm yfir höfði sér.Allen fer aftur fyrir dóm á fimmtudaginn en þá verður ákveðið hvort hann skuli áfram sæta gæsluvarðhaldi fram að réttarhöldum. Saksóknarinn Jocelyn Ballantine fór fram á það við dómara í dag að Allen yrði áfram í haldi þar sem hann