„Við höfum auðvitað lengi haft miklar áhyggjur af fjárhag borgarinnar og kannski einfaldasta leiðin til að skýra stöðuna er að hér hafa menn um árabil verið að eyða um efni fram,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, um ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 sem birtur var í dag.Rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæður um rúmlega 5 milljarða króna fyrir árið 2025. Þegar A- og B-hluti borgarinnar eru skoðaðir saman var reksturinn árið 2025 jákvæður um átta milljarða króna, sem er um 2,7 milljörðum krónum lakari niðurstaða en 2024.„Fókusinn hefur verið á röngum stað, það hefur verið fókus á gæluverkefni og aukaverkefni og minni fókus á grunnþjónustuna, að veita borgurunum góða og öfluga þjónustu, og það er þetta sem við þurfum að snúa við,“ segir Hildur.Flok