Mygla greindist í A-álmu Háskólans á Akureyri nýverið. Álman hýsir skrifstofur starfsfólks og hafa um 60 starfsmenn þurft að færa sig um set eða vinna heima. Aðeins eru nokkrir mánuðir síðan að Borgir, önnur bygging Háskólans, komst í fulla notkun eftir tveggja ára viðgerðir eftir að mygla greindist þar árið 2024. Einhverjir starfsmenn hafa kvartað yfir heilsufarsvandamálum í kjölfar myglunnar.Um sextíu starfsmenn Háskólans á Akureyri hafa þurft að færa sig um set eða vinna heima vegna myglu sem fannst í skólanum. Rektor segir þetta hafa mikil áhrif á starfsemina.„Í rauninni tókum við þá ákvörðun byggða á reynslu okkar af myglunni á Borgum á seinasta ári og þar seinasta ári að óska eftir því að fólk færi að vinna annars staðar og finna því pláss innanhúss. Það eru einhver tilfelli um það þ