Íslenska gámafélagið ætlar að flytja út þúsundir tonna af sorpi frá Akureyri til Árósa í Danmörku. Þar mun sorpið fara í orkunýtingu sem verður nýtt til framleiðslu rafmagns.Hingað til hafa Akureyringar keyrt almennt sorp á Sölvabakka við Blönduós og þar hefur það verið urðað. Að mati sviðstjóra Umhverfis- og orkustofnunnar er þetta framfararskref fyrir Norðlendinga en betur má ef duga skal.Íslenska gámafélagið ætlar að flytja sorp beint frá Akureyri til Danmerkur þar sem það fer í orkunýtingu. Þetta er nýjung fyrir Norðlendinga og framfararskref, að mati sviðsstjóra Umhverfis- og orkustofnunar.