Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Eltihrellar fá ökklaband

Alþingi hefur samþykkt frumvarp dómsmálaráðherra sem heimilar lögreglu að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði, til að mynda ökklabandi, samhliða ákvörðun um nálgunarbann og brottvísun af heimili.Frumvarpið var lagt fram til að bregðast við gagnrýni á að nálgungarbann eða brottvísun af heimili hafi ekki veitt brotaþolum nægilega vernd. Setið hafi verið um fólk árum saman án þess að lögregla hafi heimildir til að bregðast við.Lögregla fær heimild til að beita rafrænu eftirliti þegar einstaklingur sætir nálgunarbanni eða brottvísun af heimili og grunur er um að hann muni brjóta gegn þeim úrræðum. Þá fær lögreglustjóri heimildir til að taka ákvörðun um nálgunarbann eða brottvísun af heimili óháð því hvort brotaþoli eigi lögheimili í umdæmi viðkomandi lögreglustjóra.
Eltihrellar fá ökklaband

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta